|
Hjúkkur og aðrir vinir í bloggi
|
06.09.2006 00:37:33 / Sigga
Búin að setja inn nýjar myndir úr einu af fjórum brúðkaupum
sumarsins!
Ykkar Sigga....nýbakaður Hafnfirðingur
»
02.08.2006 12:10:30 / Sigga
Hola!
Við Snorri erum flogin út til Ítalíu....komum aftur til baka
þann 16. ágúst!
Arrivederci,
ykkar Sigga sól 
»
09.07.2006 22:14:31 / Sigga
Fullt fullt fullt af nýjum myndum!! 
Kíkið á myndaalbúmin! 
Kv., ykkar Sigga
»
24.04.2006 12:43:35 / Sigga
Sælt
veri fólkið!
Gleðilegt
sumar.....segir
manneskjan sem þurfti að skafa tonn af snjó af bílnum og næstum
moka sig út úr innkeyrslunni til að komast á BC-æfingu í morgun. Ég
er búin að setja inn 8 ný
albúm inn á myndasíðuna mína...albúmin sem sagt orðin 69
talsins! 
Vegna
fjölda áskorana setti ég einnig inn uppskriftina að
franska draumnum -beztu frönsku súkkulaðiköku í
heimi með heslihnetunum, þið vitið (Helga knows)!
híhí....
Kveðja
frá BC-Siggunni að lesa Draumalandið í leit að
draumaíbúðinni!

»
03.04.2006 11:34:38 / Sigga
Vá!
Boot-Camp er sko málið!!
Þetta
er ákkúrat sú þjálfun sem mig vantaði. Nú er að hefjast vika
nr. 2. á námskeiðinu og ég er að komast í góðan gír. Var að
skila fyrstu matardagbókinni minni en þeim á ég að skila
vikulega.
Tímarnir
mínir eru mán-mið-föst. kl. 6.30-7:30 og annan hvern laugard.
er svo 2ja klst. útiæfing. Það sem gerir þetta svo
skemmtilegt og spennandi er að maður veit aldrei hvers konar
æfingar bíða manns. Þarna fara fyrir hópnum 4 einkaþjáfarar
sem láta mann reyna á sig til hins ítrasta og OMG! Ég gekk um
eins og mörgæs í vinnunni og er í fyrsta skipti að finna
fyrir harðsperrum um ALLAN líkamann! Þetta er svona gott/vont
eins og maður kallar það! 
Mætti
í fyrsta tímann minn sl. mánud. beint af 12 klst.
næturvakt....púlsinn rauk náttúrulega upp úr öllu valdi en
þetta hafðist! Vorum m.a. látin gera ótal armbeygjur,
kviðæfingar og froskahopp og síðan var okkur (total 45 manns)
skipt í 3 hópa.
Byrjuðum
á því að boxa 2 og 2 saman í boxpúða með alls kyns
útlistingum. Síðan voru það step-ups í himinháum tröppum og
ýmsar útgáfur af armbeygjum. Síðan var sko killerinn! Það var
að hlaupa með vel þungan strigapoka þvert yfir salinn ótal
ferðir, bicep og tricep æfingar -NB! MEÐ strigapokunum -og
hoppa og gera allar hundakúnstir –alltaf með helv....pokann á
herðunum! Þarna var maður síðan fitumældur og fékk
afhent gögn og græjur. Ég fann strax að þetta var e-ð sem
hentar mér! Dreif mig síðan beint heim að sofa –hratt og vel-
því ég átti að mæta á kvöldvakt á Slysadeildinni síðar um
daginn! Þetta var einu orði sagt ROSALEGUR dagur!

Vorfagnaður
Boot-Camp var síðan haldinn sl. föstudagskvöld í Iðusölum í
Lækjargötu og mættu á annað hundrað manns! Þetta var ótrúlega
skemmtilegt kvöld og fyndið hvað maður hitta marga sem maður
þekkti. Veglegar veitingar á boðstólum, uppboð til styrktar
góðu málefni (síðast til styrktar krabbameinssjúkum börnum)
og hápunktur kvöldsins: Myndband a la Boot-Camp þjálfarar.is!
Bara snilldin ein! Síðan voru DJ-ar og einn músíkant sem
spilaði listilega á bongótrommur!
Húgga-búgga.....
Well....vinnuhelginni
lokið og ekki nóg með það! Klukkan 8:00 næsta föstudag er ég
komin í langþráð PÁSKAFRÍ!!! Það verður sko æðsilegt
–sérstaklega þar sem ég hef ekki tekið mér lengra frí en 3
daga í röð frá því ég útskrifaðist!
Er
að fara að hitta Birtz, Súzí og Signýju á Thorvaldsen í
lunch-brunch í hádeginu....síðan kvöldvakt á
Slysadeildinni!
Eigið
góða vinnuviku!
Ykkar
Sigga
»
26.03.2006 05:30:17 / Sigga
Sælt veri
fólkið!
Var
á árshátíð Barnaspítala Hringsins í kvöld....skellti mér
þrátt fyrir að vera skráð á bakvaktir ALLAR nætur þessa
helgina! Skemmti mér hreint konunglega. Var boðið í fordrykk
hjá Dr. yfirlæknir hr. Ásgeiri Haralds þar
sem veittar voru veglegar veigar! Sumir
doksarnir voru orðnir vel hífaðir svo ekki sé nú
minna sagt kl. 19. Þá var haldið sem leið lá með
rútubílum á Grand Hotel þar sem sjálf árshátíðin fór
fram. Boðið þar upp á fordrykk nr. 2....geggjaðan
kókos-drykk í Wodka & trönuberjum....Maturinn var ekki af
verri endanum! Rjómalöguð brandýbætt humarsúpa (sluuurk!) í
forrétt, nautalundir í aðalrétt og kaffi og Sörur o.fl. í
eftirrétt! Mögnuð skemmtiatriði....sérstaklega sérsamið lag
barnaspítalans a la Ólöf deildarstjóri! Hún er sko
textahöfundur með meiru! Árshátíðarframlag/-atriði
Vökudeildar var
heldur vafasamt þar sem Snorri deildarlæknir fór með
aðalhlutverkið í myndbandinu og brá sér í gervi dr. Atla
í Vökunni. Til að gera langa sögu stutta var Atli vægast
sagt SÁRMÓÐGAÐUR og sumir aðstandendur myndbandsins
hurfu fljótlega heim á leið! Sel það samt ekki dýrara en ég
keypti það! Heiðursgestur kvöldsins var engin önnur en
frú heilbrigðisráðherra Siv Friðleifs og hélt hún fína tölu.
Svitabandið lék fyrir dansi og tvíeykið Friðrik Ómar &
Guðrún Gunnars tóku nokkur vel valin lög! Við Embla
skáluðum í sérútbúnu sparkling water with lime/lemon og
skemmtum okkur ábyggilega bezt af öllum! Hún að fara á
nattevakt á barnaskurð á Hringbrautinni og ég á bakvakt á
barna í Fossvoginum!
Ég
var ekki fyrr komin inn úr dyrunum heima en það var
hringt í mig og ég kölluð út á baktvaktina góðu! Barn sem kom
inn á Slysadeild sem hafði slasast alvarlega! Náði samt
að vippa mér úr galakjólnum, taka af mér mestu málninguna,
slétta carmen-krullurnar úr hárinu og brunaði síðan beinustu
leið niður á Slysadeild!
Jæja....get
huggað mig við það að ég get sofið eins og ég vil á morgun!
Byrja á Boot-camp námskeiði á mánud. þannig að þar sem eins
gott að vera í góðum gír og vel upp lagður á morgnana! Síðan
er ég víst að fara á mína 3. árshátíð þennan mánuðinn á
föstudaginn. Þetta er árshátíð/vorfögnuður Boot-camp og
hlakka ég strax bara heilmikið til! Nú er ég
þegar búin að fara á árshátíð Slysa- &
bráðadeildar og Barnaspítalans.....bara fun fun fun, enda á
maður bara að njóta þess meðan maður getur! .....það
finnst mér a.m.k.! Lifðu lífinu lifandi -eat the desert
first! c",)
Knúsíkrús,
ykkar
Sigga -alias næturgali/Nightingale 
»
23.01.2006 13:30:05 / Sigga
Sælinú!
Er ekki kominn
tími á smávegis skrif? Margt hefur drifið á mína daga frá því
að ég skrifaði síðustu færslu. M.a. nýtt ár 2006 gengið í
garð og ég komin í nýja/-r vinnu/-r. Byrjaði á Barnaspítalanum þann 2.
jan. sl. og líst ekkert smávegis vel á! Þarna var tekið
ótrúlega vel á móti mér og andinn á deildinni er einu orði
sagt frábær! Strax fyrsta daginn minn fékk ég risastóran
skáp, skúffu undir allt dótið mitt og búið að ganga frá nýjum
aðgangi að tölvukerfi LSH. Það er skemmst frá því að segja að
á síðasta deildarfundi var ég sett í fræðslunefnd ásamt Emblu
o.fl. auk þess sem deildin er að hefja undirbúning á
upplýsingahandbók fyrir barnaskurðdeildina. Með þessu móti
kemst ég eflaust mun fyrr en ella inn í starfsemi
deildarinnar. Þarna fara fram allar barnaskurðaðgerðir milli
himins og jarðar og er hjúkrunin þar því ótrúlega fjölbreytt
og spennandi. Skrýtið en jafnframt ótrúlega skemmtilegt að
hjúkra börnum á aldursbilinu frá 0-18 ára. Fékk m.a. að vera
viðstödd aðgerð á 6 vikna skjólstæðingi sl. föstudag og var
skurðlæknirinn ótrúlega duglegur við að miðla til mín
upplýsingum meðan á aðgerðinni stóð. Hann hvatti mig til að
koma oftar og fylgjast með fleiri aðgerðum á skjólstæðingum
deildarinnar. Það mun ég svo sannarlega gera! 
Starfsemi
barnaskurðdeildar er tvískipt og fer hún fram á tveimur
stöðum; annars vegar Barnaspítala Hringsins og
hins vegar á gamla Borgarspítalanum (þangað
koma m.a. börn sem lenda í slysum, HNE-börn, heila- og
taugabörn sem og börn sem gangast undir
bæklunarskurðaðgerðir). Ég er einmitt að fara á fyrstu
vaktina mína í kvöld á Bogganum.
Í næstu viku
byrja ég síðan á Slysadeildinni en þar verð
ég í 20% vinnu til að byrja með ásamt barnadeildinni. Ég er
orðin ótrúlega spennt að byrja þar líka en í febrúar fer ég
m.a. á sjálfsvarnarnámskeið og ACLS-námskeið á vegum
deildarinnar. Eins gott að kunna að verja sig almennilega og
bregðast við akút-aðstæðum á Slysó! 
Er að vonast
til að fá ekki hlaupabóluna....var hjá
Helgu vinkonu í pizzu- og idol-partýi fyrir 10 dögum en hún
fékk frú hlaupó
daginn eftir! Þarna vorum við m.a. 3 sem höfum aldrei fengið
hlaupabóluna áður. Meðgöngutími veirunnar er 12-14 dagar og
ég krossa bara fingurnar og vona það bezta....7, 9, 13!!!
Þurftum m.a. að fresta „útaðborðaferð“ á Sjávarkjallarann þar sem
stóð til að fá hinn margrómaða Exotic Menu. Eftir á að
hyggja er ég bara fegin að eiga það eftir...eigum pantað borð
-ef allir verða hressir -3. febrúar
n.k.....ummmmm! 
Skellti mér með
Ester systur í Orkuverið þar sem hún er
byrjuð að kenna.....hún stóð sig bara ljómandi vel stúlkan!
Tók pallasveiflu og ég fékk bara þokkalega mikið út úr
tímanum! Fór á Memoirs of a Geisha í
gærkveldi með Sólrúnu vinkonu. Þetta er einu orði sagt
stórkostleg mynd sem á pottþétt eftir að sópa að sér
Óskarsverðlaunum. Ziyi Zhang fór á kostum í aðalhlutverki
geishunnar en hún er n.k. Öskubuska sem er vægast sagt illa
liðin af nýju fjölskyldunni sinni. Tónlistin er mögnuð enda
hlaut myndin Gullhnöttinn (Golden Globe) fyrir beztu
kvikmyndatónlistina og kemur það ekki á óvart! Er með bókina
á náttborðinu og hlakka ótrúlega til að lesa hana....þar
kemur víst mun meira fram en í myndinni. Mér finnst alltaf
ótrúlega gaman að lesa bækur eftir að hafa séð myndina því þá
sér maður atburðarásina svo ljóslifandi fyrir sér.

Jæja, bezt að
halda áfram áður en vaktin byrjar á Bogganum –skildist að á
boðstólum þetta mánudagskvöldið yrði Plokkari af beztu gerð
ásamt spergilkáli og öllu tilheyrandi! Já gott
fólk...alltaf veislumatur á borðstólum á LSH! 
Góðar stundir
og vonandi verður nýja vinnuvikan ánægjuleg hjá ykkur
öllum!
Kv, ykkar
Sigga
»
12.12.2005 00:26:19 / Sigga
Blessað veri
fólkið!
Ég var að eignast litla frænku!
Stebbi bróðir eignaðist litla prinsessu fyrir viku síðan þann
4. desember sl. Þetta er hvorki meira né minna en fjórða barn hans
og Auðar kærustu hans en nú eru komnar þrjár prinsessur og einn
prins. Hún er ekkert smávegis falleg –með dökkan koll og svaka
mikið hár! Algjör engill –bærði ekki á sér þrátt fyrir þrjú
ærslasöm systkini sem m.a. héldu fyrir mig tónleika, bjuggu til
listaverk og horfðu á Mikka mús á fullu blasti í imbanum. Stoppaði
allan seinni partinn í kaffi eftir vinnu hjá
litlu....uhumm.....sorry STÓRU fjölskyldunni í dag!

Fór á Divutónleika Frostrósa í
gær –algjör unun að hlusta á slíka jólatónlist og koma sér í
jólagírinn! Divurnar sjálfar fóru á kostum en þarna komu m.a.
fram Jónsi úr Svörtum fötum, látúnsbarkinn Bjarni Ara, Ragga
Gísla ex-Stuðmaður, Sammi úr Jagúar og Ítalinn Leone
Tinganelli. Hansa stendur náttúrulega alltaf fyrir sínu en ég
var hrifnust af laginu Geimferðalangur í flutningi
Védísar Hervarar, Margrétar Eirar og Regínu Óskar (fyndin
eignarfallsendingin í seinna nafni dívanna). Var með
Divudiskinn í CD-spilaranum í bílnum meðan ég geystist
bæjarhluta á milli í dag.....ákkúrat tónlistin til að koma
sér í réttan jólafílíng! Fer svo á aðra tónleika næstu helgi
þar sem fram koma m.a. hin berfætta Færeyjamær Eivör Páls,
stórsöngvarinn Garðar Th. Cortes og síðast en ekki síst Þórey
Cluelessdiva sem mun víst syngja einsöng. Get bókstaflega
ekki beðið eftir þessum tónleikum! Hef sl. tvö ár
farið á tónleika með Palla og Moniku og ætla jafnframt að
reyna að ná þriðju tónleikunum fyrir þessi jól.....það hafa
sko verið tónleikar í lagi!
Búin að baka eina
smákökusort –kossakökurnar- fyrir jólin og þrjár eftir. Ætla að
reyna að byrja á Sörunum og skinkuhornunum í vikulok. Hef aldrei
verið jafnsnemma í því og nú að „klára“ jólahreingerninguna –m.a.s.
búin að þvo gluggana jafnt að innan sem utan og næst á dagskrá er
jólahreingerningin á bílnum. Rjúpurnar hamflettar og komnar í hús
og stóra jólatréð stendur úti á svölum og bókstaflega bíður eftir
því að verða skreytt!
Fékk öll gögn í hendur
sl. föstudag um nýja vinnustaðinn minn –starfsaðlögunarmöppu,
vaktaplanið mitt og ýmsar áhugaverðar fræðigreinar. Var svo spennt
að ég dembdi mér af fullum krafti í lestur og líst ekkert smávegis
vel á! Nú er komið nýtt plan fyrir árið 2006! Ég er búin að ráða
mig í 80% stöðu á barnaskurðdeild og jafnframt
komin með 20% vaktir á slysa- og bráðamóttöku – gamla
vinnustaðnum mínum! Finnst ég verða að halda í akútfasann eftir
hreint magnað tímabil á hjartadeildinni! Hef bara mjög góða
tilfinningu fyrir þessum breytingum og er orðin spennt að takast á
við ný verkefni! Mun þó kveðja hjartadeildina -allavega í bili –með
vægast sagt MIKLUM söknuði! Þetta hefur verið ótrúlega lærdómsríkur
og skemmtilegur tími. Vildi stundum að ég gæti bara klónað mig og
verið alls staðar! 
Er að klára að lesa
Mýrina eftir Arnald og er að byrja á Grafarþögn og Joy Luck Club
eftir Amy Tan. Þvílíkt skrýtið að vera ekki í próflestri....eða
próftíð eins og
Norðlendingar kalla það víst! Man ekki eftir mér í desember
öðruvísi en að vera á fullu ofan í námsbókunum eins og hún Ester
systir mín er einmitt þessa dagana en hún er á lokaárinu sínu í MR.
Fæ vægt „flash back“ þegar hún er að lesa líffræðina sína –allt um
B- & T-eitilfrumur og hlutverk IgA, IgG etc. í líkamanum. Það
var að vissu leyti ákveðin stemmning að vera í próflestri, lesa
fram eftir með smájólatónlist ómandi í græjunum og
SwissMiss+piparkökur -að ég tali nú ekki um þegar maður skrapp í
smávegis ísbíltúr vestur á Hagamel til að verðlauna sig fyrir
lestrarmaraþon dagsins. Man allt í einu eftir skemmtilegu sms-i frá
Dexter, alias Ester systur, sem ég held mikið upp á og varðveiti en
það er svohljóðandi:
Vinsamlegast keypið ískrem á mel
haganna á leið yðar til vorra föðurhúsa. Enginn er ísinn hér til
(fýlukall ). Með fyrirfram þökk.....Miss EASTER –the rabbit!

Nú er ég smám saman að verða
dolfallinn kaffiunnandi en sit hér með bolla af kanil- og
heslihnetukaffi frá Te&kaffi -ótrúlega gott og ég mæli með að
þig prófið! Smakkaði magnað Cinnamon&Pecankaffi frá Harrods um
daginn og ég tala nú ekki um Frappuchino með
vanillu&heslihnetum.
Jæja, æfing í fyrramálið og
jólaundirbúningur fram að kvöldvakt!
Bezt að
fara í háttinn og svífa á vit draumalandsins.
Þangað til
næst,
ykkar
Sigga
»
22.11.2005 21:59:01 / Sigga
Whazzup??
Var
á nattevakten á ♥-deildinni
sl. nótt....gott að fara heim að lúlla þegar aðrir eru að
mæta til vinnu kl. 8. Get reyndar sjaldan sofið lengur en til
ca. 13-14 e. vaktina. Ekki laust við að maður eigi eftir að
sakna ♥-ns
þegar maður flytur sig um set....fyrir mitt leyti er þetta
algjör MUST deild þegar maður er nýútskrifaður. Finnst að
allir hj.fr. og læknar eigi að fá tækifæri til að
kynnast ♥-nu
og starfseminni þar á bæ! Ótrúlega mikið sem ég hef lært á
þessu hálfa ári og samansafn af hreint frábæru starfsfólki
sem ég hef kynnst á þessum tíma! c”,)
Við
útskriftarhjúkkur hittumst í saumó heima hjá Guðrúnu Svövu í
síðustu viku....ótrúlega kósý íbúðin hennar. Þvílíkur munur að geta
bara stokkið yfir götuna í vinnufötunum til að mæta í vinnuna á
morgnana. Rosaflottar veitingar eins og venjulega og spjallað um
þetta og hitt....alltaf e-ð nýtt sem maður fréttir í svona
hittingi! Hringdum allar saman í Elínu okkar og sungum fyrir hana
afmælissönginn.....greyið var að fara á næturvakt og var örugglega
sofandi þegar við slógum á þráðinn! Til hamingju með daginn aftur
Elín mín og sorry að við skyldum vekja þig af værum draumi!

Skellti
mér í nýjan tíma sem kallast NIA og stendur fyrir Neuromuscular
Integrative Action. Þetta er heildrænt æfingarkerfi sem er n.k.
sambland af sjálfsvarnar- og bardagaíþróttum, dansi, yoga og
heilun. Var einu orði sagt mjöööög áhugaverð nýjung! Þið ættuð að
prófa! ( Kíkið á vefsíðuna: http://www.nia-nia.com/ )
Hitti Marielle vinkonu mína sem er hjúkrunarfræðingur í
bráðamóttöku í Noregi á föstudaginn. Hún er tveimur árum eldri en
ég en við vorum að vinna saman fyrir tveimur árum á alm. skurð, en
við skelltum okkur saman í vikuferð til Köben í ágúst ’03. Hvorug
okkar hafði þá komið áður til DK og fannst okkur því upplagt að
bera borgina augum saman það sumarið.....var hrein snilldarferð svo
ekki sé nú minna sagt! Marielle er alltaf jafn hress og ótrúlega
gaman að hitta skvísuna. Hún á von á sínu 1. barni í mars og var í
heimsókn á Íslandi með kærasta sínum Thor sem er paramedic í Norge.
Var að reyna að fá þau til að flytja til Íslands.....sjáum nú til
hvernig það gekk!! 
Bauð svo Hildi og Benedikt í mat um kvöldið í Idol-Tortilla veislu
með öllu tilheyrandi. Þarf vart að kynna hvað var í
eftirrétt....náttúrulega bezti ísinn í bænum frá Úlfarsfelli vestur
í bæ og rjúkandi eplabaka! Var nokkuð sátt með að Eiríkur og
Ragnheiður Sara komust í úrslitin í Idolinu....mér finnst R.S.
minna mig svakalega á hana Hildi Völu –bæði brosið og fasið! Kom
verulega á óvart að Viktor súkkulaðistrákur kæmist ekki áfram.
Grunar að stúlkur á aldrinum 10-13 ára hafi verið farnar að
sofa....ZZZZZzzzzzzz 
Kíkti í IKEA með Erlu, Katrínu Önnu og Þóreyju á
laugardaginn....ALLT of sjaldan sem maður hittir Clueless-divurnar
sínar! Við komumst að þeirri niðurstöðu að jólin eru svo sannarlega
komin í IKEA. Allt jóladót milli himins og jarðar og fékk ég
skemmtilegar hugmyndir að jólagjöfum! Las í e-u blaðinu um daginn
að Svíar eru farnir að skíra dætur sínar IKEA –aðaltískunafnið í
Sverige! Huxa samt að það sé nú skömminni skárra en að skíra barnið
sitt Epli, Karamella, Paprika eða annað þvíumlíkt eins og Kanarnir
gera nú til dags! Fengum okkur kaffi og með’ðí og skelltum
okkur síðan í heimsókn á Leifsgötuna til Völu og Aleksi og vorum
þar í góðu yfirlæti hjá þeim skötuhjúum.
Var
síðan boðið í Thai-matarboð til Súsí og Auðuns en þar voru líka
skötuhjúin Birta og verðandi Dr. Geir. Þar fengum við dýrindis
veitingar að venju -geggjaðar vorrúllur, magnaðan kjúklingarétt í
kókos með Thai-grænmeti og brjálaða bombu í eftirrétt. Þarna sátum
við frameftir og spjölluðum um heima og geima....alltaf jafn gaman
að hitta fólkið! Takk aftur kææærlega fyrir mig Súzí og
Birtz....hlakka mikið til að endurtaka þetta kvöld
gells!
Mútta
mín kom heim úr ráðstefnuferð frá London um helgina.....alltaf gott
að fá múttu heim. Maður er alltaf pínu á varðbergi eftir atburðina
sem áttu sér stað í Londres í júlí í sumar. Var sjálf alltaf
með ♥-ð
í buxunum þegar rauður „uppistrætó“ ók framhjá okkur í
Cluelessferðinni um verslunarmannahelgina í sumar og ég tala
nú ekki um þegar við tókum strætó frá Oxford Street og dökki
skuggalegi maðurinn með svarta grunsamlega bakbokann steig
upp í vagninn á miðri leið! Þá hélt ég að dagar okkar væru
taldir!!!! 
Var að
horfa á Strákana á Stöð2....þeir eru óborganlegir! Vakning á Ilmi
Kristjáns, hamstrakapphlaupið mikla og Pétur Jóhann í gervi J.Á. í
Sjálfstæðu fólki....hann tók Þorstein Guðmunds svoleiðis á beinið
að annað eins hefur ekki sést. Meistarinn sjálfur og sjónvarpsmaður
ársins J.Á. hrósaði Pésa m.a.s. þvílíkt fyrir frammistöðuna um
daginn og kallaði hann snilling!
Well
framundan er vinnuvika og –helgi en á föstud. er hj.fræðingum og
læknum á ♥-deildinni
boðið á hið árlega jólahlaðborð á Nordica sem á víst að vera
svaka galakvöld! Ég er mjööög spennt þar sem ég hef aldrei á
ævi minni farið á jólahlaðborð!!!! Síðan er annað
hjúkkuhlaðborð á Hereford 2. des....verð greinilega bara í
þessu sem og tónleikum og öðrum skemmtilegheitum fram að
jólum! Langar m.a. á Divutónleikana 10. des og Katie Melua í
mars '06. Ekki slæmur árstími núna....venjulega væri ég
nefnilega byrjuð í próflestri á þessum tíma árs. Les
kannski bara Þriðja Táknið eftir hana Yrsu sem er að fara
sigurför um heiminn þessa dagana! 
Vonandi
að þið hafið það sem allra bezt!
Sigga
jólastelpa
(P.S. Búin að setja
inn nýjar myndir á myndasíðuna!)
»
13.11.2005 21:00:28 / Sigga
God
aften!
Ég dýrka sunnudaga þar sem maður getur slappað af fyrir alvöru og
gert allt það sem mann langar til. Skroppið á kaffihús og fengið
sér ómótstæðilegan frappuchino, farið á æfingu, horft á imbann og
lesið blöðin spjaldanna á milli. Ábyggilega búin að lesa næstum
allar áhugaverðar greinar í Mogganum og Fréttablaðinu. Las um Óla
Stefáns, Garðar Cortes junior –óperusnilling með meiru, nýju
fatahönnunarlínu Bítilsdótturinnar Stellu McCartney sem er að slá
öllu við í Evrópu (eins gott að við Embla séum ekki staddar þessa
stundina í Sverige.....værum örugglega búnar að heimsækja H&M
oftar en góðu hófi gegnir og tæma lagerinn í þrígang!) og hjón sem
höfðu ættleitt þrjú börn frá Kólumbíu og eignuðust svo loksins
fjórða barnið með „gömlu góðu aðferðinni“ eins og svo skemmtilega
var að orði komist. 
Síðustu
helgi bauð lyfjafyrirtækið MSD (Merck, Sharp & Dome)
starfsfólki hjartadeildar og bráðamóttöku til áhugaverðrar
lyfjakynningar og kvöldverðar að Lækjarbrekku. Þar held ég að Helga
Braga hafi átt vinninginn en hún bókstaflega reitti af sér hvern
brandarann á fætur öðrum og dansaði magadans við undirleik KissKiss
lagsins margrómaða. Hún lét okkur hin ekki sitja auðum höndum og
fékk okkur öll til að dansa með.....þ.á m. hjartasérfræðingana sem
fóru gjörsamlega á kostum svo ekki sé nú minna sagt. Ég hélt að við
myndum fara yfir um af hlátri. Á boðstólum var m.a. gómsæt
humarsúpa, kjúklingabringur og rautt&hvítt með
því.......
Daginn eftir var haldið í
Íslensku óperuna þar sem við sáum leiksýninguna Kabarett og Þórunn
Lárusdóttir fór á kostum ásamt fleirum. Ótrúlega margar
leiksýningar sem mig langar að sjá þessa dagana, t.d. geðveiki
gamanleikurinn Himnaríki, Ég er mín eigin kona (með sjarmatröllinu
Hilmi Snæ) og Edith Piaf. Það er einhver sjarmi við að fara í
leikhús....sérstaklega þegar líða fer að jólum! Nú hefur maður
loxinz tíma fyrir slíkt....leikhús, tónleika
u.s.w.
Fór
út af borða með Hreyfingarskvísum í gærkveldi á nýja indverska
veitingastaðinn Indian Mango. Við pöntuðum okkur fjóra mism.
aðalrétti en þar má nefna svaka góðan svartfugl, kjúlla,
portúgalskan piri-piri fisk (x-tra hot) og svínarif....mér prívat
og persónulega fannst svartfuglinn standa upp úr. Svo var
náttúrulega naan-brauð, papadom (brauð að hætti Indverja sem
smakkaðist eins og laufabrauð/kartöfluflögur), ljúffeng myntusósa
og mango chutney. Í eftirrétt var m.a. hnetu- og súkkulaðiturn,
saffran-mango ís og gulrótareftirréttur. Allt mjög gómsætt.....en
gulrótarrétturinn var nú ekki upp í nös á kettlingi....c.a helmingi
minni en mini-kókoskúla að stærð. Hugsa að Helga sjái enn stórlega
eftir því að hafa ekki pantað hliðarskammt af súkkulaðiköku!!! c”,)
Á borðinu við hliðina á okkur sátu hjón með son sinn sem leit
bókstaflega út eins og sjálfur Oliver Twist. Hann var í hnésíðum
buxum líkt og Pétur í Ölpunum.....(jodelio lei hí hú!),
stuttermaskyrtu og punkturinn yfir i-ið voru svo skórnir hans en
annar þeirra var grænn en hinn skær-appelsínugulur. Aaaaalgjört
krútt! Á borðinu hægra megin við okkur sat svo Svavar Örn
hárgreiðslumeistari ásamt unnusta sínum og vinahópi. Ein konan í
þessum hópi bað vinsamlegast um að ekki yrðu teknar neinar myndir
af grúppunni meðan á borðhaldi stæði (ábyggilega verið hrædd um að
birtast í Séð&Heyrt eða Hér&Nú eftir helgi). Kíktum svo á
Café Oliver og leiðin lá síðan í deildarpartý hjá
kirurgiuliðinu....þar var sko fjör! Drifum aðal djammliðið með
okkur á Oliver again þar sem við dönsuðum fram eftir nóttu við R’nB
og Hip-Hop tónlist......
Well....þetta var helgarupdate Siggunnar.
Gaman væri nú að heyra hvað þið eruð að bralla og grallarast þessa
dagana........
Luv,
SigguZ
»
29.10.2005 17:28:24 / Sigga
Sælt veri
fólkið...
.....long time no write!
Ætli sé ekki komið að því að ég svari klukkinu og skrifi a.m.k. 5
staðreyndir um Sigguna! 
-
Ég er búin að fá 100%
stöðu á barnaskurðdeild á Barnaspítala Hringsins
frá og með 2. janúar n.k. –er óóótrúlega spennt að byrja! Búin að
skoða deildina og er þarna fyrirmyndaraðstaða og pláss til að
athafna sig. Fer að vinna með Emblu minni sem var með mér í Svíþjóð
í verknámi fyrir ári síðan...trúi varla að það sé liðið heilt ár
frá Uppsala-ævintýrinu!
-
Ég náði
ACE-prófinu sem ég tók 1. okt síðastliðinn. Þetta
er Personal Fitness Trainer exam sem skiptist í tvo hluta. Sá fyrri
var 2 klst. bóklegur hluti þar sem voru case studies og við áttum
að taka að okkur skjólstæðinga, koma með ráðleggingar (t.
sjúkdómsástandi) og gera þjálfunaráætlun. Seinni hluti prófsins var
síðan frá kl. 13.00-17.30 þar sem ég svaraði 250 krossum með fimm
svarmöguleikum! Niðurstöður prófsins eru allar tölvukeyrðar og lágu
fyrir nú í vikunni. Fékk sent bréf í fyrradag frá Morrisville,
North Carolina, þess efnis að ég hefði
náð!
(Var víst ca 75% fall í
fyrra).
-
Ég er nýbakaður
bílaeigandi –festi kaup á Toyota Yaris árg. 2002 í
gær....fyrsta almennilega snjódeginum í Rvík. Skrifaði undir í gær
og gekk frá pappírum. Þetta er ótrúlega fínn bíll, sparneytinn og
þægilegur í akstri + með flottum CD-spilara. Erum nú með hvorki
meira né minna en fimm bíla í hlaðinu!
-
Ég vann 91 klst. frá
föstud-föstud. í síðustu viku
(Workaholic)......ætla samt ekki að gera þessa
vitleysu aftur en þarna var ég að vinna á þremur mismunandi deildum
(2 skurð og lyf). Veitir samt kannski ekki af að vera duglegur þar
sem maður er farinn að reka bíl, borga sky-high tryggingar,
afnotagjöld u.s.w.
-
Mátaði
brúðarkjól í fyrsta og VONANDI ekki síðast skipti
um síðustu helgi. Ástæðan er sú að ég var fengin til að vera módel
í lokaverkefni í brúðarförðun hjá einni sem var að ljúka námi í
snyrtifræði....þetta var ekkert smávegis gaman! Fæ að eiga
myndirnar og allt saman!
Nú
vantar mig bara fína íbúð, kisu (helst norskan skógarkött) og
xxxxxx 
Jæja, er á leið í
sumarbústað með bekknum eftir hálftíma....ætlum að elda e-ð
ótrúlega gott í kvöld eins og venjulega, spila, fara í
pottinn, e.t.v. fara í SingStar o.fl. Get ekki beðið eftir að
hitta liðið. c”,)
Hasta la
vista,
Ha’ det bra!
Ykkar Sigga
»
09.09.2005 14:16:51 / Sigga
Helló!
Hvað er að frétta? Ótrúlega skrýtið að vera ekki að fara í
skólann í september...sakna dálítið
skólabóka-/bekkjafélaga-/hauststemmningarinnar sem myndast alltaf í
sept....en kosturinn er náttúrulega að þurfa ekki af taka nein próf
á þessari önn (að undanskildu ACLS-prófi). Bara vinna og aftur
vinna á deild hjartans! 
Minns á afmæli á sunnud. 11. sept....(ekkert ó....greyið þú hér
-9/11! By the way -4 ár liðin frá atburðinum). Hvorki meira né
minna en 25 ára STÓRafmæli hjá minni. Verð með fólk í mat á morgun
og síðan verður sko jammað djammað! Var að koma úr
afmælisklippingunni enda sko kominn tími til að snyrta aðeins
lubbann sinn....ekki farið í klippingu síðan daginn fyrir
útskriftina í júní. 
Well, bezt að fara niður í MR að sækja systu í skólann....Hún er
ábyggilega OFURhress eftir gærkvöldið. Busaball með meiru. Say no
more! Blikk, blikk! 
Góða helgi elskurnar!
Ammlis-Siggan
»
07.08.2005 19:46:49 / Sigga
Helló
jó!
Komin
heim eftir hrein geggjaða Clueless-divuferð til London. Ég, Elsa, Erla og
Kristín flugum út til Daggar, Herdísar, Völu og Þóreyjar um
verslunarmannahelgina og áttum ótrúlega skemmtilega helgi saman.
Við gistum þrjár nætur á fínu hosteli með sturtu, morgunmat og 24
klst. internettengingu og borguðum innan við 6000 ISK á mann fyrir
þetta allt. Fórum m.a. út að borða á Levantine –líbanskan
veitingastað en á staðnum var mega hot magadansmær.....og hún Þórey
okkar ofurgella sýndi sko hvað í henni býr því hún fór á kostum við
magadansinn. 
Við
Erla og Elsa skelltum okkur í Pineapple Dance Studio sem er
einu orði sagt magnað! Þetta var eins og ganga inn í kvikmyndina
FAME en stúdíóið var stofnað árið 1979 og þar var fólk með
svitabönd og legghlífar, svartir jafnt sem hvítir, sumir að teygja
á þreyttum vöðvum á ekta ballettslám eftir hörkuátök og fólk í tap
dance (steppdans), poledancing, cheerleading og guð má vita hvað.
Við ákváðum að fara í
RnB Hip Hop Grooves
- sem er n.k. Jazz-Funk tími. Leiðbeinandinn var dökkur strákur á
mínum aldri með þvíííílíka takta að annað eins hefur varla sést.

Héldum árshátíðina okkar á laugardagskvöldinu á veitingastaðnum
Asia de Cuba sem er
hannaður af engum öðrum en sjálfum Philip Stark. Það er óhætt að
segja að þetta sé hip og kul staður með meiru. Kokteilar, margrétta
for- og aðalréttir….fékk mér m.a. önd og kjúkling…..uummm, nammi
namm….fæ bara vatn í munninn við tilhugsunina! Síðan var farið á
Kokteilbarinn Metza þar sem hinn alræmdi kokteill Very-berry gerði
stormandi lukku hjá okkur öllum…..eiginlega var hann of góður! Og
Golden Dream var heldur ekki síðri. Endað á skemmtistaðnum 101 við
enda Oxford Street þar sem við kynntumst nokkrum typical
Bretum……við komum þeim skilaboðum áleiðis að við værum giftar hver
annarri en þeir áttu einhverra hluta vegna erfitt með að trúa því!

Fórum m.a. á Victoria & Albert’s Museum, röltum um í Covent
Garden, forum á sunnudagsmarkað, fengum the Godfater-ísrétt á Bella
Italia….sem ber sko nafn með rentu -og versluðum smávegis síðustu
klukkustundirnar á Oxford Street.
Við stóðum fyrir endurfundum/reunioni 5 ára stúdenta
úr MR sl.
föstudagskvöld sem heppnaðist alveg ótrúlega vel…..a.m.k. skemmti
ég mér konunglega. Skemmtilegt að hitta alla aftur……suma hafði ég
m.a.s. ekki séð síðan á útskriftinni 1. júní 2000. Ótrúlegt hvað
tíminn flýgur! Hengdum m.a. upp FAUNU-myndir af öllum árganginum,
skreyttum salinn með 5 ára blöðrum, fengum hljómsveit, DJ, vorum
með happdrætti og blönduðum bollu….lítill fugl hvíslaði því síðan
að mér í gær að hún hefði verið dálítið sterk fyrir suma!
Kíkti með Dagmar og Magna Val á Gay Pride í gær og fengum okkur
síðan kakó á Litla Ljóta andarunganum til að hlýja okkur…..ekki
laust við að farið sé að dimma úti og jafnvel hausta svolítið. Mér
finnst alltaf allt breytast ótrúlega eftir
verslunarmannahelgina….skammdegið farið að segja til sín og allir
að komast í sinn haustfíling. Reyndar verður ábyggilega
stórfurðulegt að setjast ekki á skólabekk í september….já, í fyrsta
skipti frá því ég man eftir mér! Og hjúkket fjúkket að losna við
jólaprófin –loksins fær maður að njóta desembermánaðar og
jólaundirbúningsins í botn!
Fékk tvö atvinnutilboð alveg óvænt upp úr þurru í dag og í gær
–bæði á Borgó og við háskólasjókrahúsið í Osló, Noregi! Hugsa að ég
sé samt ekki á leið til udlandet núna…..a.m.k. ekki þetta árið enda
búin að heimsækja 5 lönd árið 2005!! Við Erla perla o.fl. vorum að
hoppa og skoppa frá því kl. 7.30 í morgun í upptökum….var ótrúlega
gaman. Ekki laust við að maður sé svolítið dasaður eftir
daginn.
Jæja, er að fara að hitta múttu niðri í bæ…..ætlum að fá okkur e-ð
ótrúlega gott í gottinn! Pápi í veiði og Ester í spinnigal
útskriftarferð MR á Portúgal!
Búin að setja myndir frá
Londres og Reunioninu inn á myndasíðuna mina!
Enjoy.....eins og Bretarnir segja!
Ykkar
Hjúkköpp
»
28.07.2005 23:49:32 / Sigga
Jamm og já!
Við Clueless divurnar erum að fara til Londres.....ELDsnemma í
fyrramálið en ég verð víst sótt kl. 4.45. Fjórar okkar fóru sl.
þriðjudag og svo förum við fjórar á morgun. Toodles er fjarri góðu
gamni í landi Kengúra og Kóalabjarna -en við hugsum vel til þín
Tótla mín! Við erum að ræna Erlu perlu og taka hana í
brúðkaupsferð þessa helgina. Ætlum í Pineapple Studio í
Jazz-Funk, salsa og það heitasta í dag.....SÚLUdans ) Eigum
pantað borð á Asia de Cuba sem verður n.k. árshátíðarkvöld með
Cosmopolitans etc. Planið er m.a. að fara á laugardagsmarkað í
Notting Hill, hoppa upp í London Eye, kíkja í Soho-hverfið, China
Town og gæða okkur dim sum....
Bezt að fara að kveðja....enda ekki seinna vænna!
Knús, ykkar
ZigguZ
»
17.07.2005 15:02:56 / Sigga
Hola
Amigos!
Var
í yndislegu brúðkaupi hjá
Erlu og Jónasi í gær. Þau voru gefin saman við hátíðlega athöfn
í Háteigskirkju þar sem Þórey Sif söng eins og engill
Our Love is here to stay
og Þú fullkomnar mig......brúðurin bókstaflega grét af
gleði. Við komum brúðhjónunum heldur betur á óvart þegar við sungum
I say a little
prayer.....held að þau hafi bara haft gaman af! Síðan var
veislan haldin í Glaðheimum –sal í Lindarhverfi í Kóp. Þvílíkar
veitingar maður minn....við áttum ekki til orð.....kalkúna- og
drottningarskinka, kjúllar og geggggjuð brúðkaupsterta. Ótrúlega
léttar og skemmtilegar ræður, þ.á m. við Clueless-divurnar sem töluðum
til nýgiftu hjónanna og rifjuðum upp skemmtilegar minningar úr MR.
Tótla á priki var með okkur í anda en hún er stödd í
Sydney, Ástralíu...Toodles! Þú fattar þetta ef þú skoðar myndirnar
mínar! ) Þar tilkynntum við Jónasi m.a. að við Clueless-urnar
myndum ræna Erlu og taka hana með okkur í brúðkaupsferð til London um
verslunarmannahelgina. Vala og Elli vinur Hr. Jónasar
voru veislustjórar og stóðu sig ekkert smá vel.....gjörsamlega
reittu af sér og síðan talaði Valan ótrúlega fallega til Erlunnar
sinnar. Kaja (Katrín
Anna) dóttir E&J var ótrúlegur engill og ekki annað að sjá en
hún skemmti sér konunglega í brúðkaupi foreldra sinna....skvísan
varð einmitt eins árs föst. 15. júlí. Til hamingju enn og
aftur!
Þá
voru rútuferðir heim til foreldra brúðarinnar og allir komu í
geggjað skemmtilegt garðpartý en Gummi og co. höfðu nýlokið við að
byggja þvílíkt glæsilegan & RISAstóran pall úti í garði. Þar
stigu E&J brúðarvalsinn og síðan var harmonikkuspilerí, tjútt
og gítarsöngur úti í tjaldi fram eftir nóttu. Takk fyrir yndislegan
dag í gær.....skemmti mér óóótrúlega vel og ég get næstum lofað að
ég tali fyrir munn allra! Þúsund þakkir fyrir mig!
Kíktum síðan í byen í lokin til að dansa gjörsamlega af okkur
skóna.......
Er
búin að setja inn myndir á myndasíðuna úr
brullaupi frú Erlu &
herra Jónasar Rafns....njótið vel!
Kv.
ykkar Sigga
»
Síður: 1 2 3 4
|
|