Sælt veri
fólkið...
.....long time no write!
Ætli sé ekki komið að því að ég svari klukkinu og skrifi a.m.k. 5
staðreyndir um Sigguna! 
-
Ég er búin að fá 100%
stöðu á barnaskurðdeild á Barnaspítala Hringsins
frá og með 2. janúar n.k. –er óóótrúlega spennt að byrja! Búin að
skoða deildina og er þarna fyrirmyndaraðstaða og pláss til að
athafna sig. Fer að vinna með Emblu minni sem var með mér í Svíþjóð
í verknámi fyrir ári síðan...trúi varla að það sé liðið heilt ár
frá Uppsala-ævintýrinu!
-
Ég náði
ACE-prófinu sem ég tók 1. okt síðastliðinn. Þetta
er Personal Fitness Trainer exam sem skiptist í tvo hluta. Sá fyrri
var 2 klst. bóklegur hluti þar sem voru case studies og við áttum
að taka að okkur skjólstæðinga, koma með ráðleggingar (t.
sjúkdómsástandi) og gera þjálfunaráætlun. Seinni hluti prófsins var
síðan frá kl. 13.00-17.30 þar sem ég svaraði 250 krossum með fimm
svarmöguleikum! Niðurstöður prófsins eru allar tölvukeyrðar og lágu
fyrir nú í vikunni. Fékk sent bréf í fyrradag frá Morrisville,
North Carolina, þess efnis að ég hefði
náð!
(Var víst ca 75% fall í
fyrra).
-
Ég er nýbakaður
bílaeigandi –festi kaup á Toyota Yaris árg. 2002 í
gær....fyrsta almennilega snjódeginum í Rvík. Skrifaði undir í gær
og gekk frá pappírum. Þetta er ótrúlega fínn bíll, sparneytinn og
þægilegur í akstri + með flottum CD-spilara. Erum nú með hvorki
meira né minna en fimm bíla í hlaðinu!
-
Ég vann 91 klst. frá
föstud-föstud. í síðustu viku
(Workaholic)......ætla samt ekki að gera þessa
vitleysu aftur en þarna var ég að vinna á þremur mismunandi deildum
(2 skurð og lyf). Veitir samt kannski ekki af að vera duglegur þar
sem maður er farinn að reka bíl, borga sky-high tryggingar,
afnotagjöld u.s.w.
-
Mátaði
brúðarkjól í fyrsta og VONANDI ekki síðast skipti
um síðustu helgi. Ástæðan er sú að ég var fengin til að vera módel
í lokaverkefni í brúðarförðun hjá einni sem var að ljúka námi í
snyrtifræði....þetta var ekkert smávegis gaman! Fæ að eiga
myndirnar og allt saman!
Nú
vantar mig bara fína íbúð, kisu (helst norskan skógarkött) og
xxxxxx 
Jæja, er á leið í
sumarbústað með bekknum eftir hálftíma....ætlum að elda e-ð
ótrúlega gott í kvöld eins og venjulega, spila, fara í
pottinn, e.t.v. fara í SingStar o.fl. Get ekki beðið eftir að
hitta liðið. c”,)
Hasta la
vista,
Ha’ det bra!
Ykkar Sigga