God
aften!
Ég dýrka sunnudaga þar sem maður getur slappað af fyrir alvöru og
gert allt það sem mann langar til. Skroppið á kaffihús og fengið
sér ómótstæðilegan frappuchino, farið á æfingu, horft á imbann og
lesið blöðin spjaldanna á milli. Ábyggilega búin að lesa næstum
allar áhugaverðar greinar í Mogganum og Fréttablaðinu. Las um Óla
Stefáns, Garðar Cortes junior –óperusnilling með meiru, nýju
fatahönnunarlínu Bítilsdótturinnar Stellu McCartney sem er að slá
öllu við í Evrópu (eins gott að við Embla séum ekki staddar þessa
stundina í Sverige.....værum örugglega búnar að heimsækja H&M
oftar en góðu hófi gegnir og tæma lagerinn í þrígang!) og hjón sem
höfðu ættleitt þrjú börn frá Kólumbíu og eignuðust svo loksins
fjórða barnið með „gömlu góðu aðferðinni“ eins og svo skemmtilega
var að orði komist. 
Síðustu
helgi bauð lyfjafyrirtækið MSD (Merck, Sharp & Dome)
starfsfólki hjartadeildar og bráðamóttöku til áhugaverðrar
lyfjakynningar og kvöldverðar að Lækjarbrekku. Þar held ég að Helga
Braga hafi átt vinninginn en hún bókstaflega reitti af sér hvern
brandarann á fætur öðrum og dansaði magadans við undirleik KissKiss
lagsins margrómaða. Hún lét okkur hin ekki sitja auðum höndum og
fékk okkur öll til að dansa með.....þ.á m. hjartasérfræðingana sem
fóru gjörsamlega á kostum svo ekki sé nú minna sagt. Ég hélt að við
myndum fara yfir um af hlátri. Á boðstólum var m.a. gómsæt
humarsúpa, kjúklingabringur og rautt&hvítt með
því.......
Daginn eftir var haldið í
Íslensku óperuna þar sem við sáum leiksýninguna Kabarett og Þórunn
Lárusdóttir fór á kostum ásamt fleirum. Ótrúlega margar
leiksýningar sem mig langar að sjá þessa dagana, t.d. geðveiki
gamanleikurinn Himnaríki, Ég er mín eigin kona (með sjarmatröllinu
Hilmi Snæ) og Edith Piaf. Það er einhver sjarmi við að fara í
leikhús....sérstaklega þegar líða fer að jólum! Nú hefur maður
loxinz tíma fyrir slíkt....leikhús, tónleika
u.s.w.
Fór
út af borða með Hreyfingarskvísum í gærkveldi á nýja indverska
veitingastaðinn Indian Mango. Við pöntuðum okkur fjóra mism.
aðalrétti en þar má nefna svaka góðan svartfugl, kjúlla,
portúgalskan piri-piri fisk (x-tra hot) og svínarif....mér prívat
og persónulega fannst svartfuglinn standa upp úr. Svo var
náttúrulega naan-brauð, papadom (brauð að hætti Indverja sem
smakkaðist eins og laufabrauð/kartöfluflögur), ljúffeng myntusósa
og mango chutney. Í eftirrétt var m.a. hnetu- og súkkulaðiturn,
saffran-mango ís og gulrótareftirréttur. Allt mjög gómsætt.....en
gulrótarrétturinn var nú ekki upp í nös á kettlingi....c.a helmingi
minni en mini-kókoskúla að stærð. Hugsa að Helga sjái enn stórlega
eftir því að hafa ekki pantað hliðarskammt af súkkulaðiköku!!! c”,)
Á borðinu við hliðina á okkur sátu hjón með son sinn sem leit
bókstaflega út eins og sjálfur Oliver Twist. Hann var í hnésíðum
buxum líkt og Pétur í Ölpunum.....(jodelio lei hí hú!),
stuttermaskyrtu og punkturinn yfir i-ið voru svo skórnir hans en
annar þeirra var grænn en hinn skær-appelsínugulur. Aaaaalgjört
krútt!
Á borðinu hægra megin við okkur sat svo Svavar Örn
hárgreiðslumeistari ásamt unnusta sínum og vinahópi. Ein konan í
þessum hópi bað vinsamlegast um að ekki yrðu teknar neinar myndir
af grúppunni meðan á borðhaldi stæði (ábyggilega verið hrædd um að
birtast í Séð&Heyrt eða Hér&Nú eftir helgi). Kíktum svo á
Café Oliver og leiðin lá síðan í deildarpartý hjá
kirurgiuliðinu....þar var sko fjör! Drifum aðal djammliðið með
okkur á Oliver again þar sem við dönsuðum fram eftir nóttu við R’nB
og Hip-Hop tónlist......
Well....þetta var helgarupdate Siggunnar.
Gaman væri nú að heyra hvað þið eruð að bralla og grallarast þessa
dagana........
Luv,
SigguZ